Ingimar Þór
herskylda, án einkennisbúnings

Pólitík

Allir ættu einhvern tíma að taka þátt og bjóða fram krafta sína. Það hafa allir eitthvað að bjóða og það er mikilvægt að enginn standi hjá.

🪖

Hinum megin við borðið

Það er auðvelt að gagnrýna sífellt þá sem stýra fyrir okkur, og það er hollt að komast hinum megin við borðið. Fyrir mér, og nú síðast í framboði Góða dagsins, litum við svolítið á þetta sem herskyldu.

Þegar við höfum lokið herskyldunni þurfum við ekkert endilega að fara aftur í herinn. Við höfum gert okkar.

enginn var látinn gera armbeygjur

Herskyldan mín

Í tímaröð, nýjast efst.

  1. Nú síðast

    Framboð Góða dagsins

    Nýjasta útkallið. Herskyldu lokið, að sinni.

  2. 2024

    Umferðaröryggi í Grafarvogi

    Ég tók að mér formennsku í umferðaröryggisnefnd Grafarvogs. Við gáfum út skýrslu um málefni hverfisins árið 2024 og ég fékk að kynna hana fyrir umhverfisnefnd borgarinnar.

    Lesa skýrsluna (PDF) →

    30 km hámarkshraði á lestri hennar
  3. 2022 – 2025

    Íbúaráð Grafarvogs

    Eftir borgarstjórnarkosningarnar tók ég að mér að sitja í íbúaráði Grafarvogs kjörtímabilið 2022 – 2026. Ráðið var hins vegar lagt niður árið 2025, með ótrúlegum hætti.

    Við í íbúaráðinu höfðum unnið heilmikið starf og í ljós kom að lítið sem ekkert var hlustað á tillögur okkar. Íbúasamráðið var í skötulíki og mikil samstaða var í ráðinu um að slíkt ætti ekki að líðast.

  4. 2022

    Borgarstjórnarkosningar

    Á lista Pírata fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2022.

  5. 2021

    Alþingiskosningar

    Hér byrjaði þetta: ég bauð mig fram fyrir Pírata fyrir alþingiskosningarnar 2021.

    Fréttin á Vísi →

Greinar, ræður og fréttir úr pólitíkinni eru á Efni.