Ingimar Þór
ferilskráin, án PDF-viðhengis

Ferillinn

Nýjast efst. Þeir sem vilja lesa söguna í réttri röð byrja neðst og skruna upp, eins og í gamla daga.

Starfsreynsla

Sjö vinnustaðir á 38 árum, sumir oftar en einu sinni.

  1. 2025 – núverandi

    Sjálfstætt starfandi ráðgjafi í gegnum Betri lausnir ehf.

  2. 2011 – 2025

    Forstöðumaður upplýsingatæknideildar Kópavogsbæjar

    Ábyrgð á tölvukerfum Kópavogsbæjar og stofnanna bæjarins, ábyrgð á síma- og netmálum bæjarins, ábyrgða á miðlægri þjónustu við íbúa og starfsmenn, stjórnandi verkefnastofu og stafrænnrar vegferðar bæjarins.

    já, ég kom aftur. Og var í fjórtán ár.
  3. 2009 – 2011

    Sjálfstætt starfandi ráðgjafi í gegnum Betri lausnir ehf.

  4. 2008 – 2009

    Forstöðumaður upplýsingatæknideildar Kópavogsbæjar

    fyrri umferð
  5. 2004 – 2016

    Aðalkennari námskeiðsins „Hagnýt upplýsingatækni“ við HR auk kennslu í MBA námsleið skólans og fjölmörg önnur styttri námskeið

  6. 2004 – 2008

    Framkvæmdastjóri Betri lausna ehf., hugbúnaðarhúss

  7. 2000 – 2004

    Forstöðumaður tölvu- og upplýsingasviðs HR

  8. 2000

    Forstöðumaður og staðgengill framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs hjá ÍslandsbankaFBA

  9. 1998 – 2000

    Forstöðumaður tölvu-, skjala- og gæðamála FBA

  10. 1991 – 1998

    Forstöðumaður upplýsingatæknisviðs Iðnlánasjóðs

  11. 1989 – 1991

    Hugbúnaðarþróun hjá Iðnlánasjóði

    fyrsta vinnan sem tölvunarfræðingur
  12. 1987 – 1989

    Hugbúnaðarþróun hjá Eimskip

    fyrsta greidda vinna fyrir forritun

Menntun

Fjögur próf. Öll staðin.

  1. 2002

    MBA, Alþjóðleg MBA-gráða frá Háskólanum í Reykjavík

    • Sérstök áhersla á stafræna vegferð í rekstri og stjórnun fyrirtækja.
    • Námið var í samstarfi við 10 erlenda háskóla, þar sem 75% kennara komu erlendis frá.
    • Öll verkefni og flestar framsögur voru á ensku.
    • Lokaverkefnið leitaðis við að tengja framkvæmt við stefnu fyrirtækja. Verkefnið var unnið í samvinnu við Íslandsbanka og lagði grunn að útreikningi á arðsemi verkefna í uppbyggingu stafrænna lausna (ROI). Þar var reynt að forgangsraða stafrænum verkefnum með hliðsjón af viðskiptalegum og samfélagslegum markmiðum bankans.
    þroskaðri og mun meiri metnaður – frábær hópur sem kynntist vel
  2. 1989

    BSc í Tölvunarfræði frá Háskóla Íslands

    • Áhersla á hugbúnaðargerð og sér í lagi þarfagreiningu og hönnun
    • Valnámskeið í rekstrarverkfræði (vélaverkfræðiskor) með áherslu á stjórnun og rekstur fyrirtækja.
    • Lokaverkefnið var þarfagreining og hönnun kennsluhugbúnaðar fyrir fötluð börn
    allt að gerast samhliða: vinna, safnað fyrir íbúð og eignast barn
  3. 1985

    Stúdentspróf af eðlisfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð

    • Þurfti að taka 24 umframeiningar vegna slakrar mætingar (úff).
    • Nýtti umframeiningarnar vel og tók lögfræðinámskeið, félagsfræði, leiklist og meira að segja matreiðslu, fyrir utan alla valkúrsana í stærðfræði sem voru í boði.
    alltof mikil óregla á þessum tíma en nóg af áhugaverðri stærðfræði
  4. 1980

    Grunnskólapróf frá Álftamýrarskóla

    góðar æskuminningar héðan

Annað

🏸

Áhugamál

  • Fjallgöngur, útivist, golf og ferðalög.
  • Badminton og líkamsrækt.
  • Ljósmyndun, bókaskrif og söngur.
vantar fleiri klukkutíma í sólarhringinn
🤝

Félagsstörf

Virkur í félagsskap, þó lítið í stjórnarsetu. Hefur setið í stjórn Badmintonsambands Íslands, trimmnefnd TBR og stjórn starfsmannafélaga. Einnig tekið þátt í ýmsum nefndum, t.d. skemmtinefndum.

alltaf gaman að taka þátt