Kennslan
Ég hef alltaf haft gaman af því að hjálpa öðrum og leiðbeina. Það liggur líka í fjölskyldunni: pabbi kenndi ýmis námskeið í rafeindavirkjun, systir mín er grunnskólakennari og konan mín sömuleiðis. Ég slapp með stundakennslu eins og pabbi.
- Alltaf
Að kenna það sem maður smíðaði sjálfur
Það er skemmtilegt að leiðbeina öðrum um notkun hugbúnaðar, og sérstaklega ef ég skrifaði hugbúnaðinn sjálfur. Þá er eins og maður sé að selja eigin hugmyndir um hvernig hlutirnir eigi að virka.
Þetta er ekki ósvipað pólitík. Þar leggur maður líka sitt á vogarskálarnar: hugmyndir um hvernig laga megi þjóðfélagið. Munurinn er sá að hugbúnaðurinn mótmælir sjaldnar.
- 1989
Lokaverkefnið var dæmigert fyrir áhuga minn
Lokaverkefnið mitt í tölvunarfræði var að hanna kennslukerfi sem tók sérstaklega mið af sérþörfum fatlaðra einstaklinga. Ég fundaði meðal annars með nemendum í sérdeild Hlíðaskóla og kennurum deildarinnar, því það er erfitt að hanna fyrir fólk sem maður hefur aldrei hitt.
Leiðbeinandi minn var dr. Oddur Benediktsson og það var mér mikill heiður að njóta leiðsagnar hans í þessu verkefni.
- 2004 – 2016
Háskólinn í Reykjavík
Ég kenndi í HR í tólf ár og samanlagt um og yfir 2.200 nemendum. Í námskeiðinu „Hagnýt upplýsingakerfi“ fór ég meðal annars yfir:
- Þróunarferil hugbúnaðar.
- Grunn að gagnasafnsfræði og venslaða gagnagrunna.
- Verkefnastjórnun.
- Grunnþætti forritunar.
- Mismunandi aðferðir við prófanir á hugbúnaði.
Sérstök áhersla var á þarfagreiningu og hönnun hugbúnaðar. Ég kenndi einnig í MBA-námsleið skólans og á fjölmörgum styttri námskeiðum.
þarfagreining: að spyrja áður en maður smíðar - Inn á milli
Excel, fyrir lengra komna
Ég hef haldið mörg námskeið í gegnum tíðina og á tímabili fjöldann allan af „advanced“ Excel-námskeiðum fyrir ýmsa hópa.
já, það er hægt að hafa gaman af veltitöflum
Ingimar Þór